Ásþétti
Varma & vélaverk er með margar stærðir og gerðir af Chesterton og John Crane ásþéttum á lager og aðstoða tæknimenn fyrirtækisins við val á ásþéttum og efnum í þéttiflötum eftir óskum viðskiptavinarins. Ásþéttar henta meðal annars vel í vatnsdælur og dælur í matvælaidnaði.
Á lager eru mismunandi gerðir af ásþétti sem má nota í efnum á skalanum pH 0–13, t.d. vatn, olíur, leysiefni, sýrur og basa, gufur, eldsneyti og vax.
Kol og harðmálmshlutar ásþéttis eru hannaðir þannig að hitamyndun og ytri þrýstingur hefur ekki áhrif á lögun þéttiflötu sem tryggir góða þéttingu við allar aðstæður. Stærstu birgjar eru John Crane og Chesterton.
