
Gírmótorar
F – Tannhjólagír
F-gírinn er hliðraður tannhjólagír með háa nýtni og möguleika á öxulúttaki eða hulsu. Vegna góðrar hönnunar er hann lítill um sig miðað við það vægi sem hann yfirfærir og því tilvalin lausn þar sem pláss er lítið. Dæmigerð notkun: flutningsbúnaður, færibönd og sniglar. Tæknilegar upplýsingar: gírhlutfall 3,77–31434, moment 87–18000 Nm, mótorafl 0,12–200 kW.
K – Vinkilgír
K-gírinn er tannhjóla vinkilgír með háa nýtni (yfir 96%) og möguleika á öxulúttaki eða hulsu. Stórt úrval í afli og gírhlutföllum, lítið viðhald og góð ending, margfrepa gír fyrir mjög lágan snúning. Tæknilegar upplýsingar: gírhlutfall 3,98–32625, moment 125–50000 Nm, mótorafl 0,12–200 kW.
R – Tannhjólagír
R-gírinn er beinn tannhjólagír með háa nýtni. Með sex einsþrepa og fjórtán tveggja/þriggjaþrepa gírstærðum (R37–R167) býður SEW-Eurodrive ákjósanlegt hlutfall milli afls og stærðar. Tæknilegar upplýsingar: gírhlutfall 1,3–27001, moment 31–18000 Nm, mótorafl 0,09–160 kW.
S – Snekkjugír
S-gírinn er snekkju vinkilgír með einu tannhjólaþrepi og hærri nýtni en venjulegir snekkjugírar. Hagstæður í verði, stórt úrval í afli og gírhlutföllum og hljóðlátur. Tæknilegar upplýsingar: gírhlutfall 6,8–33818, moment 43–4000 Nm, mótorafl 0,12–22 kW.
W – Vinkilgír SPIROPLAN®
W-gírinn er vinkilgír með SPIROPLAN® tönnum og álhúsi sem gerir hann mjög hljóðlátan, viðhaldslítinn og léttan. Hentar fyrir lítil og meðalstór færibönd þar sem pláss er lítið. Tæknilegar upplýsingar: gírhlutföll 3,2–75, max moment út 12–180 Nm, mótorstærðir 0,09–3,0 kW.